|
Ýmsar síður tengdar hjúkrun
|
25.10.2007 11:01:06 / Guðrún
ÉG ER KOMIN MEÐ NÝJA BLOGGSÍÐU http://www.123.is/gudrunpetra ÞETTA ER LÆST SÍÐA EN ALDREI AÐ VITA NEMA ÞÚ FÁIR AÐGANG 
»
23.10.2007 18:23:20 / Guðrún
Já það má nú segja það. Ég held að ég geti nú sagt að ég hef bara ekkert verið að hanga (síðan í gær) þannig að þetta byrjar vel hjá mér. Ég finn bara strax að ég er mikið jákvæðari og hef gaman af lífinu. Ég er ekkert stressuð fyrir skólan og ég ætla bara að taka eitt verkefni í einu og eins og ég var að læra í skólanum í dag að þá ætla ég að búta niður öll stóru verkefnin og gera mörg lítil, þá verður svo mikið auðveldari að vinna þau  Mér finnst ég bara vera full af orku  Ég er að vinna í ritgerð núna sem gengur ágætlega að gera, ég þarf bara aðeins að fara betur yfir hana og fínpússa. Jæja best að halda áfram að vera svona dugleg.
»
21.10.2007 17:17:31 / Guðrún
Ég kom til Akureyrar í gær því nú fer skólinn aftur að byrja. Í gær var litla frænka skírð og fékk hún nafnið Aldís Marý. Rosalega fallegt nafn og passar vel við litlu fallegu dömuna. Aldís Marý var rosalega góð í kirkjunni, það bara heyrðist ekki í henni. Hún var skírð á Ólafsfirði og veislan var haldin í húsi aldraðra. Veislan var stórglæsileg. Það var alveg ótrúlegt magn af kökum og réttum, þvílíkt úrval. Ég komst nú ekki yfir þetta allt þó að ég hafi nú samt borðað heilmikið. Við fórum svo með þeim til tengdaforeldra Rannveigar og fylgdumst með þegar verið var að opna pakkana og Aldís Marý fékk fullt af fallegum gjöfum. Dagurinn í dag var svo bara rólegheitardagur. Herborg kom í heimsókn í morgun, Eiki og Guðbjörg í hádeginu og Vilberg, Rannveig og Aldís komu eftir hádegi. Ég ætla svo í heimsókn til þeirra á eftir. Ég er búin að vera eitthvað svo rosalega áhugalaus undanfarið og ekki nennt neinu og mig langar til að breyta því. Mig langar til að vera duglegri og hitta fólk, fara út og gera eitthvað skemmtilegt. Ég ætla að vera dugleg að fara í heimsóknir og gera það sem mig langar til. Ég er líka svo oft að fresta hlutum útaf því að ég er í skólanum og ætla alltaf að gera það þegar skólinn er búinn, ég ætla að hætta því og bara að gera hlutina. Málið er að ég ætla alltaf að vera svo dugleg að læra og hef svo sem alveg verið það, en svo þegar ég nenni því ekki þá geri ég ekki neitt því ég ætti að vera að læra og fæ þá samviskubit. Það sem maður getur verið ruglaður stundum. Ég ætla að leyfa ykkur að fylgjast með. Eitt af því sem ég ætlaði að bíða með þar til skólinn yrði búinn var að gera með nýja heimasíðu. En það tekur nú varla meira en eina kvöldstund að gera það. Þannig að Herborg má ég koma til þín eitthvert kvöldið og fá hjálp frá þér til að setja upp heimasíðu eins og þú ert með.
»
18.10.2007 18:43:30 / Guðrún
Þá er ég að vera búin með tímann minn hérna fyrir sunnan. Mikið þykir mér það nú leiðinlegt. En það verður nú samt æðislegt að koma norður og hitta alla og sjá litlu prinsessuna sem er ekki ennþá búin að fá nafn. Hún verður skírð á laugardaginn. Þannig að það fær mig nú til að hlakka til að koma norður  Það sem ég hef verið að gera hérna fyrir sunnan er aðalega að vinna. Ég er búin að hitta Gullu tvisvar sinnum. Við hittumst í saumaklúbb og ákváðum svo að fara líka í bíó á myndina No Reservation, geggjað góð. Síðan hef ég saumað og horft á sjónvarpið. Ég hef voða lítið farið út. Fór aðeins í Skeifuna á Laugardaginn og þar með er það upp talið. Mikið er nú gott að vera bara heima hjá sér  Nú er ég búin að ákveða að fara norður með jákvæðu hugarfari. Ég ætla að setja allt á fullt á mánudaginn varðandi lærdóminn, áhuginn hefur ekki verið mikill á þessari önn, en nú bara verður hann að koma. Nú svo ætla ég að reyna að vera dugleg að fara í heimsóknir. Ég er búin að vera fyrir norðan í rúman mánuð og ég held að ég geti talið heimsóknir á annarri hendinni, ekki gott  Nú er ég dottin í Glæstar og ég dríf mig á fætur til að geta horft á þær, þegar ég er ekki á morgunvöktum, allavega eitthvað jákvætt við þetta. Nú og enn er ég að lesa Ísfólkið og mér finnst þær svo skemmtilegar. Það er verið að gefa þær út aftur núna og það er bara búið að endurútgefa upp í bók nr. 11 og ætli þær komi ekki út á svona mánaðarfresti þannig að nú fer að hægjast á í þeim lestri. Ég er búin að lesa 10 bækur og er að fara að byrja á bók nr. 11. Svo er bara að bíða. Katrín þú ert heppin að vera bara rétt að byrja því þá þarftu ekki að bíða alveg strax allavega eftir næstu bók  jæja læt þetta duga að sinni. kveðja Guðrún Petra 
»
30.09.2007 22:30:33 / Guðrún
Jæja þá er maður bara komin "heim" aftur eftir alveg rosalega skemmtilega helgi. Við fórum af stað um kl. 17 á föstudaginn. Þegar við komum var stutt í matinn, þannig að við Herborg fórum upp á herbergin okkar svona aðeins að koma okkur fyrir. Síðan var bara sest við borð og farið að borða og síðan sest við annað borð og byrjað að sauma. Við sátum til kl. 3 að sauma og vorum orðnar frekar þreyttar og fengum að finna fyrir því daginn eftir, báðar með hausverk. En við létum það nú ekki á okkur fá og héldum bara áfram að sauma. Ég var nú líka í smá búðarleik og afgreiddi konurnar eins og hershöfðingi. Ég hjálpa líka aðeins til við að aðstoða við saumaskapinn. Svo var þessi dýrindis eplakaka í kaffinu og síðan var bara haldið áfram að sauma. Kvöldmaturinn var borinn fram, búið að dekka upp borð og læti. Eftir kvöldmatinn var svo haldin kvöldvaka. Þar var síðan óvænt uppákoma sem ég get ekki talað um hér þar sem enn á eftir að hittast 2 helgar. Konurnar sýndu verkin sín sem voru alveg meiriháttar. Við Herborg stofnuðum svo bútasaumsklúbb með tveimur stelpum frá Akureyri og ætlum við að hittast strax á fimmtudaginn. Bara geggjað. Það var svo saumað til kl. 2 og aðeins spjallað eftir að í rúmið var komið. Sunnudagurinn byrjaði aftur á saumaskap og búðarleik. Seinnipartinn var svo haldið heim eftir vel heppnaða helgi  Ég hvet svo alla til að hugsa stundum bara um sjálfan sig og gera BARA það sem þeim þykir skemmtilegt 
»
28.09.2007 16:07:50 / Guðrún
Já þá fer sko heldur betur að styttast í löngumýri. Ég er bara núna að bíða eftir Herborgu, hún kemur núna von bráðar. Við ætlum að vera rosalega duglegar og við tökum báðar með okkur eitthvað sem við eigum eftir óklárað. Það fer sko heldur betur að minnka í þeim staflanum þó maður byrja alltaf á einhverju nýju inn á milli, en þá er það nú samt klárað strax. Ég ætla sko ekki að fara að safna svona ókláruðu aftur. MMMM bara sauma, afgreiða í búðinni, borða góðan mat og fara í pottinn er sko sem sagt planið um helgina. Ég kláraði síðasta daginn minn í dag á skurðdeildinni og þetta er sko búið að vera alveg meiriháttar. Í dag var ég steríl í aðgerð og rétti lækninum ýmis tæki og tól sem hann þurfti við aðgerðina, bara geggjað. Þannig að eftir þessa viku ætla ég að verða skurðhjúkka þegar ég verð stór. Svo er spurning hvort það breytist eitthvað eftir næstu viku þegar ég verð búin að vera á gjörgæslunni. Ég er miklu jákvæðari núna og finnst skólinn bara ganga vel. Ég er hætt að stressa mig yfir þessu, í bili allavega. Jæja hafið það svo bara sem allra best, það ætla ég allavega að gera. Kveðja Guðrún Petra
»
24.09.2007 20:38:47 / Guðrún
Já ég dreif mig til Reykjavíkur í síðustu viku. Ég fór á þriðjudaginn. Mér bauðst far og ég stóðst það ekki. Ég verð nú samt að viðurkenna það að ég á samt ótrúlega erfitt með að taka svona skyndiákvarðanir og það tók mig alveg 40 mínútur að hugsa málið og ég sé nú ekki eftir því. Ég átti alveg yndislegan tíma þar. Ég var aðalega í afslöppun, ég lærði aðeins, annars var ég bara í sófanum og horfði á sjónvarpið og síðan uppgötvaði ég nýjan leik í tölvunni þannig að það fór aðeins tími í það líka. Ég kíkti í heimsókn til Gullu, við prjónuðum nú reyndar ekkert. Hún var að fara út til Danmerkur. Það verður gaman að fá ferðasöguna hjá henni. Ég byrjaði í verknáminu í dag á skurðdeildinni og mér líst alveg rosalega vel á þetta. Ég var viðstödd í þremur aðgerðum og fæ að sjá fleiri á morgun og bara alla vikuna. Það er svo bara spurning um að skella sér í skurðhjúkrun eftir hjúkrunarnámið, aldrei að vita. Tek mér nú samt pottþétt frí á milli. Það er að verða komið nóg af námi í bili. Ég heimsótti litlu frænku í gær. Mér finnst hún vera orðin svo mannaleg og meðfærileg, ég var ekki alveg eins hrædd við að halda á henni í gær. Rannveig og Vilberg standa sig alveg ótrúlega vel. Ég kíkti að sjálfsögðu á íbúðina þeirra líka og er hún mjög flott. Jæja hef þetta ekki lengra í bili. Kveðja Guðrún Petra
»
17.09.2007 20:23:48 / Guðrún
Jæja ég held að ég sé nú loksins að komast í einhvern skólafýling, loksins. Vonandi að það endist eitthvað. Ég á reyndar bara eftir að vera í skólanum á morgun og síðan er ég komin í smá frí, ætla samt auðvitað að nýta þann tíma vel í tengslum við skólann. Ég byrja svo í verknáminu á mánudaginn næsta, sem sagt eftir viku. Ég fer fyrst í skurðhjúkrun, mun þá vera með í aðgerðum og þess háttar, verð þá þessi sem réttir lækninum allt. Ég vona allavega að við fáum að gera eitthvað. Nú svo í vikunni á eftir verð ég á Gjörgæslunni. Mig hlakkar svolítið til að vera þar, því á þeirri deild hef ég alveg getað hugsað mér að prufa að vinna á eftir útskrift. Þannig að nú sé ég það, hvort þessi deild henti mér. Ég mundi að sjálfsögðu þá sækja um hana fyrir sunnan. Nú eftir þessar tvær vikur í verknáminu kemur langþráða fríið, ég fer suður og knúsa kallinn minn og kött. Ætla nú líka að vinna einhvern slatta. Davíð er nú einmitt á leiðinni til landsins eftir vel heppnaða ferð á Spáni, hann er alveg alsæll með ferðina. En þrátt fyrir það þarf ég að bíða aðeins lengur með að sjá hann. Jæja ætla ekki að hafa þetta lengra að sinni. Kveðja Guðrún Petra
»
09.09.2007 20:32:16 / Guðrún
Ég er nú bara búin að vera í sæluvímu eftir að litla frænka mín fæddist. Og ef það heyrist nú ekki eggjahljóð núna þá veit ég ekki hvað. En ég ætla nú samt að bíða aðeins lengur en VÁ hvað þetta er allt saman spennandi. Mér finnst æðislegt að fá að halda á henni og spjalla við hana og mér finnst ekki síður leiðinlegt að fylgjast með nýbökuðum foreldrum sinna litlu prinsessunni sinni. BARA ÆÐISLEGT  Ég hef nú ekki gefið mér mikinn tíma til að læra, ég ætla nú samt að hitta Jónbjörgu og Kollu á morgun eftir skóla og byrja á verkefnavinnu þannig að ég vona að ég komist í einhvern lærigír þá  Jæja ég ætla nú ekki að hafa þetta neitt lengra í bili. Ég er nú að reyna að blogga einu sinni í viku og held að ég hafi nú alveg staðið við það.
»
07.09.2007 07:35:16 / Guðrún
Rannveig og Vilberg eignuðust litla stelpu í nótt. ALGJÖR PRINSESSA. Hún var 12,5 merkur og 51 cm, fæddist kl. 05:00. Þeim heilsast öllum vel. Til hamingju Rannveig og Vilberg.
»
02.09.2007 01:03:33 / Guðrún
Já maður eldist víst, orðin 27. Takk fyrir allar kveðjurnar sem ég hef fengið. Annars er bara allt gott að frétta af mér. Skólinn er byrjaður og ég er í mjög skemmtilegum fögum. Ég er í Barnahjúkrun, Bráðahjúkrun, Heilsugæslu og Stjórnun. Ég verð í 2 vikur í verknámi þessa önn. Ég verð hér á Akureyri í verknámi. Fyrri vikuna verð ég á Skurðdeildinni og seinni vikuna verð ég á Gjörgæslu. Ég hlakka mikið til. Svo eftir þessar 2 vikur þá verð ég bara í fríi og þá ætla ég suður og vonandi fæ ég þá einhverjar vaktir á Grensás. Jæja, ekki ætla ég að hafa þetta neitt lengra í bili. Er að hugsa um að fara að leggjast upp í rúm og lesa. Ég er komin á bók 5 um Ísfólkið. Ég hef allavega nóg að lesa núna því ég fékk 3 bækur um Ísfólkið í afmælisgjöf frá elskulegu systrum mínum, þúsund þakkir fyrir þær. Þannig að nú á upp í 9. Kveðja Guðrún Petra
»
27.08.2007 00:34:51 / Guðrún
Já Davíð ákvað að drífa sig suður í dag. Það var mikið erfiðara að kveðja hann en ég átti von á. Ég var svo að skoða planið með verknáminu og ég verð í verknámi hér þar til í byrjun október, þannig að ég fer suður í fyrsta lagi þá. En mér sýnist ég eiga eftir að hafa alveg nóg að gera þannig að þetta verður vonandi bara alveg ógeðislega fljótt að líða. Ég heyrði svo í Davíð áðan eftir að hann kom suður og hann sagði að Grettir hafi bara beðið fyrir utan. Ohhh það er svo notalegt að fá svona móttökur. Og hann er greinilega búin að sakna okkar þar sem Davíð mátti kela við hann alveg heillengi. Ég á sko eftir að sakna hans líka. Í morgun fór ég með Davíð á golfvöllinn. Hann var að keppa í dag í liði með öðrum strák, þeir unnu nú ekkert en það var mjög gaman að fylgjast með. Og Davíð er bara orðin rosalega góður. Hann var nú lélegur á fyrri 9 en þrusugóður á seinni 9 bara 1 yfir pari. Algjör snillingur. Ótrúlega gaman að fylgjast með þegar gengur svona vel. Ég skellti mér svo í bíó með Katrínu í kvöld og vinkonum hennar. Við fórum á Astrópíu, mér fannst hún mjög skemmtileg, maður gat allavega alveg hlegið. Svo eftir bíóið er ég bara búin að vera að undirbúa mig fyrir skólann. Geggjað gaman. Ég byrja svo á því að fara í barnahjúkrun á morgun. Byrja reyndar ekki í skólanum fyrr en um hádegi. Jæja nú ætla ég að hætta þessu, ég ætla nú að reyna að vera dugleg að blogga (a.m.k. einu sinni í viku) Góðar kveðjur Guðrún Petra
»
19.08.2007 18:21:30 / Guðrún
Já hér er sko búið að vera mikill gestagangur. Aron er hérna hjá okkur og Ómar Svan, þeir komu báðir á föstudaginn. Svo er Freysi búinn að vera hérna með annan fótinn. En mér finnst þetta bara mjög skemmtilegt þótt gott væri að vera í aðeins stærra húsnæði, en þröngt mega sáttir sitja. Í gær fórum við Davíð í brúðkaupið til Gullu og Ella, þetta var alveg meiriháttar. Regína Ósk söng í krikjunni, í veislunni var boðið upp á dýrindis mat og ístertu á eftir. Og það var mikið um skemmtiatriði og leiki og skemmtum við okkur alveg rosalega vel. Ég og Aron drifum okkur svo í sund í morgun og svo í kaffi til Ingu Huldar. Síðan var bara haldið heim í afslöppun, alveg rosalega þægilegt. Ég er nú reyndar aðeins farin að undirbúa norðurferðina. Er búin að vera að þvo þvott í dag svo ég þurfi nú ekki að taka mikið óhreint með mér. Ég er núna að verða pínu spennt að koma norður, Rannveig alveg að fara að eiga og hlakkar mig nú mest til þess, svo náttúrulega skólinn, það er alltaf gaman að byrja en svo tekur alvaran við, en ég get huggað mig við það að þetta er SÍÐASTI veturinn af þessu námi. Það verður líka gaman að hitta allt fólkið mitt sem er fyrir norðan. Ég á nú samt eftir að sakna Davíðs og Grettis mikið og auðvitað Gullu prjónakellingu og eiginkonu. En ég býst nú samt við því að þetta verði fljótt að líða eins og síðasliðin þrjú ár. Það sem ég er að hugsa um að gera eftir útskrift er að vinna á mismunandi deildum, ég get sótt um að vinna á tveimur deildum í eitt ár. Mér líst alveg rosalega vel á það. Ég er mjög ánægð á Grensás en ég vil fá meiri reynslu. Deildarnar sem ég er að hugsa um núna er Gjörgæsludeild og kannski lítalækningadeild. Ég held að ég fái mikla reynslu í ýmsum tækjum og tólum á Gjörgæsludeildinni ásamt aukna þekkingu á starfsemi líkamans, þar sem fólk er undir mjög miklu eftirliti, nú og auðvitað nálarnar, ég ætla mér að verða góð í að setja upp æðaleggi. Nú og á lítalækningadeild held ég að ég fái mikla reynslu í sáraumbúnaði, langar að læra meira um það. En mér finnst þetta allt svo spennandi að ég held að alveg sama hvar ég lendi að þá fæ ég meiri reynslu og aukna þekkingu. Svo er stefnan bara að koma norður á þriðjudag eða miðvikudag, reikna nú samt frekar með þriðjudeginum. Hlakka til að sjá ykkur öll fyrir norðan. Kveðja Guðrún Petra
»
14.08.2007 11:01:50 / Guðrún
Já það má nú
segja það. Ég á eftir að vinna þrjár vaktir og það er svona
sirka vika þangað til ég kem norður. Ótrúlegt alveg, ég var
bara ekki búin að gera mér grein fyrir því. Gulla verður búin
að gifta sig og búin að vera eiginkona í 3 daga þá. Alveg
ótrúlegt.
Annars er bara allt
gott að frétta af okkur. Það sem ég geri aðallega þessa daga er að
prjóna, hekla og lesa Ísfólkið. Það geri ég í mínum frítíma. Ég
ákvað að gera mér peysu sem er bæði prjónuð og hekluð og kemur
þetta bara rosalega vel út. Ísfólkið er frábær lesning.
Davíð er komin í
sumarfrí og það sem það er gott að vakna með hann hjá sér á
morgnanna. Hann er reyndar búin að fara á undan mér á fætur báða
morgnanna en ekkert þannig að flýta sér út. Hann hefur svo farið í
golf.
Í gær kom svo Freysi
til okkar og gisti hjá okkur eina nótt, Gulla kom í saumaklúbb í
gærkveldi þannig að það voru bara fullt af gestum og rosalega
gaman. Ég bauð upp á ís með ávöxtum og heitri súkkulaðisósu. BARA
gott.
Í dag er ég svo í fríi
og er ég að hugsa um að skreppa eitthvað aðeins út, fara með blöð
og föt í sorpu og dósir í endurvinnsluna. Svo er aldrei að vita
nema maður kíki í kringluna, annars er ég nú reyndar farin að spara
þannig að ekki mun ég nú versla mikið.
Það er ný skoðanakönnun
í gangi.
Kveðja Guðrún
Petra
»
11.08.2007 00:12:18 / Guðrún
Og mig er bara
farið að hlakka til 
Ég á eftir að vinna 5
vaktir. Núna um helgin sem mér sýnist ætla að verða mjög róleg og
svo 3 daga í næstu viku, þ.e. mið - fim - fös. Það er orðið
eitthvað svo stutt í allt. Og ég fattaði það í dag að ég þurfti að
panta mér tíma í klippingu og plokk núna í næstu viku til að vera
orðin fín fyrir brúðkaupið þeirra Gullu og Ella. Og nú er það
orðið klárt. Svo þarf ég aðeins að versla í vikunni.
Í vinnunni í kvöld fór
ég aðeins á netið að kíkja á stundatöfluna og svona og þá kom nú
loksins smá spenningur í mig. Er ekkert búin að vera allt of spennt
að byrja aftur í skólanum 
Nú svo plataði ég
aðeins í síðasta bloggi sem ég ætla að leiðrétta núna. En málið er
að í þessu tveggja daga fríi mínu var ég ekki að prjóna eða halda
heimilinu fínu. Ég ákvað að skella mér til Akureyrar. En hún Gulla
frænka var stödd þar og við frænkur hennar, vinkona og
mágkona ákváðum að koma henni allverulega á óvart og gæsa
hana. Sú gæsun tókst alveg hreint svona ljómandi vel. Hún var sótt
á mótorhjól og farið var með hana einn Eyjafjarðarhring, hún
endaði svo á torginu og komst þá fyrst að því hverjar stóðu á
bak við þetta. Nú svo var hún látin rölta um miðbæinn og bjóða
gangandi vegfarendum nammi. Eftir það var haldið í sing star og
stóð hún sig svona aldeilis vel. Eftir þetta tók slökunin við, við
fórum í pottinn á Abaco og í mat á Friðrik V. Þetta var alveg
geggjað og mér fannst alveg meiriháttar að taka þátt í þessu. Og
Gulla þú stóðst þig alveg ótrúlega vel 
Jæja best að fara að
drífa sig í háttinn og í alveg þessu góðu rúmföt sem ég keypti í
gær. Alveg sjúklega mjúk og æðisleg. Nú gæti ég sko legið í rúminu
allan sólahringinn.
»
Síður: 1 2 3 ... 9
|
|